Auglýsing

F E R Đ A L Ý S I N G

27. - 28. okt.
SINGAPORE

29. okt. - 3. nóv.
CAMBODIA

4. - 28. nóv.
VIETNAM

29. nóv. - 4. des.
LAOS

5. - 26. des.
THAILAND

27. des. - 15. jan.
BALI

Vinir

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

A heimleid, bless bless Asia !

14. janúar 2007 klukkan 17:33
Jaeja tha er barasta komid ad ferdalokum hja the Sigg's. Erum buin ad vera nokkra daga her i Singapore og leggjum af stad heim a morgun. Verdum komin i snjoinn eftir hadegi a thridjudag sem gerir um 30 klst langt ferdalag uff !! Tar sem vid erum komin i goda nettengingu akvadum vid ad skella inn nyjum myndum svo tid munid nu hvernig vid litum ut : ) Svo langar okkur lika ad segja takk fyrir allar heimsoknirnar inn a bloggsiduna okkar, tad er virkilega gaman ad sja hvad margir hafa verid ad ferdast med okkur sidustu 12 vikur !!

Sjaumst von bradar

Sigga og Siggi

p.s er jolatred ekki orugglega entha uppi i Ekrusmaranum og hvernig er tad Jon Gisli thu varst buinn ad lofa ad taka ekki nidur jolaskrautid a Laugaveginum fyrr en vid kaemum heim, stenduru vid tad ?
Sigg´s
1 athugasemd

Aevintyraeyjan Bali

11. janúar 2007 klukkan 09:43

Jaeja her kemur loksins Baliblogg ! The Sigg's hafa hingad til verid sammala um ad dvolin i Vietnam hafi verid toppurinn a reisunni en tad er ohaett ad segja ad Bali hafi komid hressilega a ovart. Vid hofdum heyrt misjafnar sogur um Bali fyrir komuna hingad. Vid toludum vid marga sem vid hittum a ferdalaginu og flestir sogdu ad annad hvort elski madur Bali eda tholi ekki Bali (algengasta astedan agengir solumenn) og tad er ekkert tarna a milli. Vid erum sem betur fer i fyrri hopnum og Bali hefur stimplad sig raekilega inn a vinsaeldarlistann hja okkur. Svo a Bali bara svo margt sameiginlegt med Islandi, her eru eldfjoll og heitir hverir, fossar og svartar strendur....agaetis adlogun fyrir heimferdina : )


Bali er einhvern vegin allt odru visi en tad sem vid hofum sed og upplifad hingad til .... allt odruvisi stemning herna og vid erum aftur komin i sama pakkann og i upphafi, umhverfid er eitthvad svo spennandi og allt odruvisi en vid eigum ad venjast. Liklega er adalastaedan su ad her eru hinduar i meirihluta. Vid aetludum ad slaka a ad mestu leyti a strondinni her en vid vorum allt of forvitin til tess og sjaum ekki eftir thvi.


Vid byrjudum a thvi ad slaka a i nokkra daga a strandstad sem heitir Sanur og er adeins rolegri en Kuta sem er adalferdamannastadurinn a Bali. Tar er svona svipud stemning eins og i Mui Ne i Vietnam, mikid ad fiskibatum og svona thaegilegt andrumsloft. Vid leigdum okkur reidhjol og hjoludum um i rolegheitum. Tar eyddum vid aramotunum eins og vid hofum sagt ykkur fra.


Vid fengum sidan bleikan bilaleigubil i 3 daga og ta var ekki aftur snuid thvi okkur finnst ekkert skemmtilegra en ad runta um sveitirnar herna. Endalaust fallegir hrisgrjonaakrar og sveitasaela med storu S-i. Bali er eiginlega eins og risastort grodurhus, endalaust graen og allst stadar litrik blom. Vid aetludum ad eyda sidustu vikunni a Kuta en tad vard ur ad vid breyttum thvi i allsherjar bilferd um fallegu eyjuna Bali. Siggi laerdi a vinstri umferdina og Sigga var a kortinu. Eini hlutinn af ferdinni sem var ekki planadur fra degi til dags og tad var skemmtileg tilbreyting. Tad ma thvi segja ad vid seum buin ad theysast her um sveitirnar meira og minna fra thvi ad vid komum hingad a bleika barbibilnum okkar : )


Eftir Sanur forum vid til baejarins Ubud sem er tekktur fyrir ad vera eins konar mekka malaralistar, her hafa margir fraegir listmalarar dvalid i lengri eda skemmri tima og baerinn ber tess merki med fullt af listagallerium og kosy kaffihusum. Tar dvoldum vid i fjora daga a litlu hoteli i midjum hrisgrjonaakri !! Algjor snilld fannst okkur. Tarna eyddum vid dogunum i ad villast um litlar fallegar gotur og heilsudum upp a Balibua sem eru svo vingjarnlegir. Tad er alveg merkilegt ad fylgjast med folkinu herna, konurnar eru endalaust ad dunda ser vid ad fondra litlar fornir fyrir gudina, svo er tetta lagt her og tar um goturnar svo madur verdur ad passa sig ad stiga ekki a tetta. Medan vid vorum i Ubud var mikid af truarhatidum i gangi en taer staerstu eru a 6 man fresti ... vid heppin.....vorum vidstodd eina svoleidis sem var mikil upplifun. Vid fylgdumst med folkinu bidja og koma med fornir fyrir gudina, alls kyns mat og fineri, sidan var dansad fram eftir kvoldi. Athofnin stendur yfir i 3 daga og stundum allan solarhringinn og vid fengum heldur betur ad finna fyrir thvi a litla hotelinu okkar i hrisgrjonaakrinum. Tad var bara verid ad kyrja alla nottina og spilud furduleg tonlist sem omadi um allt herbergid okkar hehe. Ja tad er ohaett ad segja ad tad se serstok stemning a Bali sem er ekki annarstadar i sud-austur Asiu. Hefdum ekki viljad missa af tessu !

Eftir Ubud forum vid sidan afram a bleika bilnum okkar a austurstrondina tar sem vid vorum a svartri strond sem minnti helst a fjoruna heima .... nema hvad herna snorkludum vid i sjonum eins og vid aettum lifid ad leysa. Skodudum 2 skipsflok, fullt af flottum fiskum, krossfiskum og korolum. Tad er ohaett ad segja ad eftir daginn vorum vid dugleg ad bera a okkur after sun sem fekk fljotlega vidurnefnid after snorkl !!


Nuna erum vid komin til Kuta sem er halfgerd Costa del Bali. Her er ekki mikid sem minnir okkur a tha Bali sem vid thekkjum en fint ad vera her og slappa af i nokkra daga. Ekki laust vid ad vid seum farin ad hlakka til heimferdar serstaklega tegar vid lesum gestabokina og allir sakna okkar svona mikid : ) Vid segjum somuleidis ! Verdum her i 3 daga adur en vid fljugum aftur til Singapore tar sem ferdalagid hofst ... tangad til naest...


bless bless,
Sigga og Siggi

Framhaldssaga fra Thailandi !!

01. janúar 2007 klukkan 15:54
Ja tad er bara kominn januar og vid erum entha a ferdalagi : ). Takk fyrir nyarskvedjurnar og okkar bestu oskir til ykkar allra um gledilegt nytt ar. Vid hofum tad mjog gott her a Bali, tad er bara ekki annad haegt. Vid bordudum a mjog kosy stad beint a strondinni a gamlars/afmaelisdaginn, tad voru meira ad segja nokkrar ylur a stangli og pinulitil brenna... bara nokkud aramotalegt !!

Hofum verid lot ad blogga en okkur langar ad klara ad segja ykkur fra Thailandi tho svo ad vid seum komin a graenu eyjuna Bali.

Eftir ad hafa brugdid okkur a filsbak og i rafting i Nordur Thailandi sem var hluti af gongunni sem vid forum i med Steinari og Sondru flugum vid  til eyjarinnar Koh Samui. Tar vorum vid i afsloppun i viku. Vorum reyndar frekar oheppin med vedur en gerdum bara gott ur thvi. Forum i tennis og gerd var tilraun til ad fara i golf en sokum vedurs var akvedid ad hopurinn heldi sig vid minigolf. Sigga er lika komin med nytt vidurnefni Stiga Fjalldal vegna gifurlegs ahuga a bordtennis en tad er mjog umdeildt hvort hun hafi unnid Sigga Ma i eitt skipti. Eitt er vist ad Helgi Jens ma fara ad vara sig eftir stifar aefingabudir i hotelgardinum a Koh Samui : ).

Einn daginn forum vid med speedboat til eyjarinnar Koh Tao tar sem vid snorkludum i sjonum og tad er an efa eitt af thvi skemmtilegra sem vid hofum gert. Otrulega taer sjorinn og fullt af marglitum fiskum syndandi ut um allt i kringum okkur. Nemo bad kaerlega ad heilsa ollum a Islandi. Aetlum ad reyna ad endurtaka tetta i Bali ef vid getum.

Eftir Koh Samui la leidin til Bangkok. Tar hittum vid Viktor aftur og vid forum oll ut ad borda saman og Viktor kynnti okkur fyrir naeturlifinu. Vid hofdum oll mjog gaman ad Bangkok, nutum tess ad borda godan mat og versludum adeins. Vid keyptum okkur stora og goda ferdatosku svo nu erum vid opinberlega haett i syndarbakpokaferdalaginu. Vid hofdum thvi midur engan tima til ad skoda konungshollina og bakpokaferdalangagotuna en vid verdum nu ad skilja eitthvad eftir fyrir seinni tima hehe.

Vid kvoddum Steinar og Sondru i Bangkok skrytid ad hugsa til tess ad tau flugu beint heim i jolasteikina en vid heldum bara afram ad narta i nudlur her i Thailandi. Vid heldum ferdinni afram til Kanchanaburi tar sem vid skodudum menjar fra seinni heimstyrjoldinni tad er ad segja lestarteina og gamla bru sem eru hluti af langri leid sem tengdi saman Burma og Thailand. Stridsfangar og vinnumenn fra Burma voru thvingadir til ad leggja tessa leid a sinum tima og vid skodudum safn tengt tessu og forum i lest hluta af leidinni. I lok dagsins forum vid svo med kajak ad hotelinu sem vid gistum a i tvaer naetur. Tetta hotel er skemmtilegasti gististadurinn sem vid hofum verid a tad var nefnilega fljotandi a flekum, ekkert rafmagn og otrulega notalegt og kosy. Tar tokum vid myndirnar i hengirumunum,  vaegast sagt afsloppud  jol.  Vid laum i hengirumunum a daginn, roltum i nudd, skelltum okkur svo i bjorgunarvesti og letum okkur fljota nidur anna aftur ad hengirumunum okkar hehe sannkallad letilif.

Siggi skellti ser i fotbolta i thorpi sem var alveg vid flekahotelid, getur bara legid i leti i stuttan tima i senn ! Folkid sem byr i thorpinu kallast MON-people og koma fra Burma. Leidsogumadurinn okkar var fra tessu torpi og hann heldur med MOnchester United  : ) svo tad var Arsenal vs Mon.Utd. tetta kvold. Kannski ekki ykja merkilegt nema hvad tad var ein belja sem var a midjum vellinum allan timan hreyfingarlaus thratt fyrir mikil tiltrif med boltann. Svo komu tarna lika 3 filar i haegagangi eftir hlidarlinunni eins og ekkert vaeri sjalfsagdara. Hmmm frekar mikil upplifun fyrir tvo Islendinga.

Eftir aevintyrid i Kanchanaburi forum vid til Hua Hin tar sem vid eyddum jolunum eins og adur sagdi innan um felaga okkar Dani, Svia og nokkra apa sem bjuggu i grennd vid okkur.

Tha erum vid komin til Bali og segjum ykkur meira fra lokaspretti reisunnar sidar. Vonum ad tid hafid att god aramot med godum mat og vonandi ad einhverjum hafi thott skaupid gott : )

Aramota og nyarskvedja

The Sigg's
Sigg´s
3 athugasemdir

Jolakvedja fra Thailandi !!

23. desember 2006 klukkan 15:17
HO HO HO her kemur stutt jolakvedja til ykkar allra heima, fjolskyldu og vina. Erum nuna i solinni a Hua Hin, mikid af jolatrjam og ameriskum jolalogum en ekki beint jolalegt eins og vid erum von ad hafa tad a Islandi hehe. Tetta verda fyrstu jolin okkar saman og an efa verda tau eftirminnileg, blanda af thailenskum, donskum og saenskum turistajolum. Hljomar skrautlega : ).

Okkar bestu oskir til ykkar allra um gledileg jol og farsaelt komandi ar. Hittumst hress og kat a nyju ari.

Jolasolarkvedja fra Hua Hin

Sigga og Siggi

ps. fyrir tha sem eru ad fara a taugum i jolastressinu .... kikid a myndaalbumid og reynid ad leika sama leik og vid og njotid nu jolanna : )
Sigg´s
3 athugasemdir

Frumskogarferd i Thailandi part I

16. desember 2006 klukkan 12:47

Hae ho thad er allt gott ad fretta af ferdalingunum fjorum og ymislegt skemmtilegt verid brallad fra sidasta bloggi. Vid vorum nokkra daga i borginni Chiang Mai adur en vid heldum aftur upp til fjalla i gonguferd. Vid notudum timann til ad skoda falleg hof og rolta um gamla baeinn, tarna var lika skemmtilegur naeturmarkadur a hverju kvoldi sem vid letum ekki fram hja okkur fara. Golfvollurinn a svaedinu var skodadur og fekk mjog goda doma, tad var akvedid ad bida med ad fara hring tar til i golfferdinni sem verdur vonandi farin einhvern timann seinna, her er heimasidan http://www.chiangmaigreenvalleygolf.com/ ....skraning i ferdina er formlega hafin : ) !

The Sigg's voru mjog dugleg ad leggja nyju ferdafelogunum lifsreglurnar vardandi hvad vaeri ohaett ad borda og hvad ekki og tau fengu lika einkakennslu i ad prutta nidur verdid i Tuktuk, holdum samt ad teim hafi bloskrad tegar vid trodum okkur fjogur i litinn tuktuk, hehe bara stemning og eftirminnilegt !!

Eftir ad buid var ad afthyda og afstressa nyju ferdalingana fra klakanum sem komu beint ur jolaosinni og frostinu var haldid af stad i ferd sem atti eftir ad koma okkur ollum a ovart.

Tetta var alveg frabaer gonguferd i alla stadi og mjog olik gongunni i Vietnam. Tetta var sannkollud frumskogarferd, i upphafi fengum vid oll bambusgongustafi og okkur sagt ad nota tha ospart til ad verjast snakunum sem vid hittum reyndar aldrei Siggu til mikillar gledi. Gangan tok vel a, enda gengid rosklega og mikid upp a vid i attina ad Lahu village tar sem vid attum ad gista fyrri nottina. A hadegi stoppudum vid i litlu thorpi og bordudum nestid okkar og hittum saetasta svin i heimi sem leidsogumadurinn okkar Tam kys ad kalla Jessicu Alba thvi taer eru jafnfallegar sem tulkast a thailensku "same same". Guidinn okkar hann Tam var alveg frabaer og fell alveg inn i litla Islendingahopinn og tad var mikid hlegid og gantast a leidinni upp fjallid. Af og til saum vid utsyni nidur skogi vaxna dali, her og tar voru litlir hrisgrjonaakrar og villt bananatre.

Seint i eftirmiddaginn komum vid svo til Lahu tar sem vid gistum a mest kosy stad sem vid hofum komid a i ferdinni. Tetta var einskonar bambushotel, med fallegri verond med utsyni yfir fallega dali. Eftir heita sturtu, lagum vid threytt og sael a pudum og pullum og nutum utsynisins medan Tam og nokkrar hjalparhendur ur thorpinu eldudu kvoldmatinn. Tad var a tessu momenti sem helmingurinn af hopnum uppgotvadi ser til mikillar skelfingar ad kokkurinn var allt i einu buinn ad smeygja ser i Liverpool treyju ..... WHAT ??? heyrdist i sumum HVERNIG ER TETTA HAEGT ??? nefnum engin nofn en thau byrja baedi a S og getidi nu !!

Medan vid bidum eftir matnum og sogudum i okkur frabaert fjallaloftid, komu nokkrir litlir krakkar ur torpinu ad heilsa upp a okkur og svo var lika bodid upp a nudd. Steinar akvad ad skella ser i nudd tarna a verondinni sem var vist mjog hressandi. Mjog skondid ad sja litlu krakkana hjalpa til med litlu lofana sina, Steinar var nu bara sattur eda tangad til litlu puttarnir kryddudu tetta adeins og foru ad toga i harin a fotunum. Tetta var sem sagt mjog heimilisleg og notaleg stemning og Steinar fekk heldur betur ekta fjallanudd hehe.

Vid fengum svo lika tennan ljufenga mat a verondinni vid kertaljos og eftir matinn lagum vid i kringum litinn vardeld og reyndum ad sannfaera Tam um ad Liverpool vaeri langt fra thvi ad vera besta fotboltalid i heimi !! Tad var mikid hlegid enda var otrulegt hvad hann minnti okkur mikid godan felaga sem thvi midur komst ekki med i ferdina. Omar tad er her med stadfest ad thu att thailenskan tvifara sem er frabaer kokkur, dyrkar Liverpool og dreymir um ad Jessica Alba giftist ser !!
 
Tegar slokknad var a vardeldinum var stokkid a klossettid til ad taka myndir af risakongulom, vid hofum liklega aldrei verid jafnfljot ad pissa og akvadum ad tad vaeri vissara ad bida med ad bursta tennurnar til morguns.....frh af gonguferd sidar...tad er ad hefjast bordtennismot hja okkur  i tessum toludum ordum og ekki timi fyrir meira blogg i bili.

Jolakvedjur 4S

Sigg´s
1 athugasemd

Thrju lond a einum degi og geri adrir betur !!

07. desember 2006 klukkan 22:01

Tad var heldur betur erfitt ad kvedja Vietnam en lika tilhlokkun ad koma til Laos. Vid akvadum ad breyta adeins ut af ferdaplaninu og thiggja heimbod fra einum gestanna sem vid hittum a siglingunni a Mekong anni milli Kambodiu og Vietnam. Vid hofum thvi morguninn i Sapa, tokum lestina til Hanoi, flugum tl Vientiane hofudborgarinnar i Laos seinnipartinn og sofnudum i Thailandi heima hja vini okkar.

Tad var frabaert ad hitta Richard vin okkar af batnum, hann a fallegt hus vid Mekong anna og madur horfir beint yfir til Laos. Vid turftum bara ad koma okkur 600 metra yfir Mekong anna til ad komast til Thailands. Tad var gaman ad koma tarna i heimsokn, fengum grilladan fisk ur anni og koftudum frameftir. Voknudum svo eldsnemma og skodudum Thai Box skola sem hann setti a laggirnar i thorpinu sem hann byr i. Vid hittum nokkra unga boxara og skodudum aefingaadstoduna adur en vid skundudum yfir landamaerin aftur thvi vid flugum til borgarinnar Luang Prabang um hadegid.

Luang Prabang er mjog skemmtileg og notaleg borg tad er ad segja gamli midbaerinn, mikid af fronskum nylendubyggingum, litlum kaffihusum og budum. Tetta er svona stadur tar sem madur situr og nytur tess ad gera ekki neitt annad en ad fylgjast med folkinu a gotunum, sotra kaffi og soga i sig stemninguna. Tessi gamli baer er einn heitasti vidkomustadurinn i sudaustur Asiu i dag og okkur finnst tad ekkert skrytid.

Tarna komumst vid lika i fyrsta sinn i navigi vid munka, tad er mjog mikid af teim i gamla baenum. Konur mega ekki tala vid munkana en svo hittum vid ungan munk sem vildi endilega spjalla vid okkur svo vid settumst nidur med honum i einu af hofunum. Fyrsti og liklega eini munkurinn sem vid kynnumst a aevinni : ). Eldsnemma a morgnana er haegt ad sja munkana labba svo hundrudum skiptir i einfaldri rod eftir gotunum sem er mjog tilkomumikid.

Vid sloppudum af i 2 daga i tessum notalega bae en svo hofst siglingin yfir til Thailands sem var mjog skemmtileg. Nu hofum vid siglt tvisvar a Mekong, baedi fyrir nordan og sunnan. Tad er mjog olikt, mjog fjallent fyrir nordan. Vid komum vid i nokkrum thorpum a leidinni, smokkudum m.a. rotsterkt hrisgrjonawhisky. Siglingin tok 2 daga og vid endudum i litlu sveitathorpi a landamaerum Thailands og Laos. Vid vorum i thorpinu i 2 daga adur en vid forum yfir til Thailands i annad sinn. Eftir stutt kynni af Laos finnst okkur tad minna okkur adeins a Kambodiu en Laos er tho heldur throadra, folkid er vingjarnlegt her eins og allstadar sem vid hofum komid og maturinn godur.
 
Nu tekur vid annar kafli i ferdinni, aevintyri i nordur Thailandi og sidan sol og strond i sudur Thailandi. Nu hafa 2 ferdafelagar baest vid i draumaferdina, thau lasu bara bloggid og hingad eru tau komin .... Mr Steinar and Ms Sandra....Thailand here we come : ).

Sigg´s
1 athugasemd

Gonguferd i Sapa

04. desember 2006 klukkan 12:36

Eftir 2 goda daga i Hanoi og i sveitunum tar i kring tokum vid naeturlest upp til Sapa sem er fjallatorp i nordur Vietnam. Vorum ansi hvekkt eftir ad hafa verid raend i naeturlest a Italiu i fyrra svo vid vorum ollu vidbuin. Lestin reyndist vera hin thaegilegasta og vid gatum tho amk laest ad okkur. Komum eldsnemma ad morgni eftir ad hafa sofid vel og farangurinn allur med  i tetta sinn enda var Siggi buinn ad margvefja myndavelina utan um sig svo tad tok langan tima ad losa hana aftur hehe. Fyrsta daginn notudum vid til ad keyra um fjollin i tessum lika agaeta jeppa og med okkur var ungur leidsogumadur sem tekkti vel til allra aettbalkanna sem bua tarna i fjollunum. Teir eru 54 talsins og a leidinni saum vid marga teirra iklaeddum sinum hefdbundna klaednandi sem er mjog litrikur og fallegur. Hver og einn aetbalkur a sinn eigin buning.

Landslagid tarna er olysanlega fallegt, hrisgrjonaakrar i stollum her og tar i fjallshlidunum og litil thorp i kring. Vid vorum  mjog heppin med vedur thvi vanalega er mikil thoka a tessum arstima en vid hofdum goda fjallasyn allan timan. Vid runtudum um fjallvegina og komum vid a laugardagsmarkadi fjallafolksins og saum tar hvernig teir bua til fotin sin og tad var verid ad selja alls kyns vefnadarvorur og hluti sem bunir voru til i torpunum. Ohaett ad segja ad tetta hafi verid litrikasti markadurinn sem vid hofum sed hingad til !!

Endudum jeppaferd dagsins med ad keyra inn i Sapa baeinn tar sem vid gistum. Frekar skrytid ad koma tarna svona serkennileg asisk alpastemning. Gistum a hoteli sem minnti okkur adeins a skidaskala og svafum med saengur og gerviarineld til ad halda a okkur hita.....aetlum samt ekki ad kvarta yfir kulda thvi tarna var ca 10-15 stig a kvoldin. Islenskt sumarvedur sem sagt !! Fyndid ad segja fra thvi ad borda morgunmat og fylgjast med starfsfolkinu vinna i dunulpunum sinum og vid i stuttermabolum og stuttbuxum. Typiskir Islendingar !!!

Gonguferdin sjalf var 2 daga long og mjog skemmtileg og i lettari kantinum, komum vid i morgum torpum og drukku m te med heimamonnum. Allstadar tar sem voru krakkar hlupu teir a eftir okkir spennt, kallandi hello bye bye thank you ....
Gistum svo i bambuskofa i einu torpanna innst i dalnum sem vid gengum um. Tar var kvoldmaturinn matreiddur yfir opnum eld vid mjog frumstaedar adstadur vaegast sagt en bragdadist eins og a 5 stjornu hoteli. Svo var spilad kinverskt tafl sem Siggi var buinn ad kynna ser og lesid vid kertaljos. Voknudum daginn eftir vid fyrsta hanagal og laetin i svinunum sem voru nagrannar okkar. Heldum svo tilbaka til Sapa tar sem vid eyddum sidasta deginum i ad ganga um torpid og skoda okkur um.

Tokum sidan naeturlestina tilbaka til Hanoi eldsnemma og nadum ad fylgjast med borgarbuum i sinni daglegu morgunleikfimi vid vatnid. Her og tar var folk i badminton, skokka, aerobic, i kinverskri leikfimi eda blaki innan um morgunumferdina. Tad var otrulegt ad sja eldgamlar konur otrulega vel a sig komnar fettandi og brettandi sig og med oadfinnanlegt jafnvaegi.

Tad er skemmtilegt ad segja fra thvi ad tegar vid komum til Hanoi frettum vid ad Ho Chi Minh vaeri kominn aftur fra Russlandi. Vid gaetum okkur ekki hugsad okkur betri leid til ad enda dvol okkar i tessu frabaera landi en med thvi ad sja tennan merka mann og heyra stuttlega um sogu hans.

Flugum tennan sama dag til Laos, skrifum meira um tad sidar.....

Halong Floi

27. nóvember 2006 klukkan 20:52
Heldum til Halong floa snemma ad morgni, fra Hanoi er tetta ca 3 tima akstur sem er reyndar fljott ad lida thvi tad er svo fallegt landslagid a leidinni. Fjallent sem er ekki fyrir sunnan og fallegir hrisgrjonaakrar. Buffaloar a stangli her og tar og baendurnir ad vinna. Gaman.

Stoppudum adeins vid a halfgerdum " Solheimum" tar var seld ymis konar handavinna og keramik. Margir hverjir a tessu heimili eru med faedingagalla eftir eiturahrifin fra sprengjunum i Vietnamstridinu. Enn ma gaeta eiturefna i drykkjarvatninu a vissum stodum i sudur Vietnam. Somu samtokin sem stofnudu tetta heimili vinna nu ad thvi ad hreinsa vatnid. Mjog gaman ad koma tarna og fylgjast med hvad allir eru flinkir ad sauma og mala.

Vorum buin ad hlakka mikid til ad fara i tessa siglingu, tessi floi er verndadur af UNESCO og vid erum ekki hissa a thvi. Hvilik natturufegurd, vid okkur blasti graenleitur sjorinn og risandi upp ur honum oteljandi dropasteinsfjoll (limestone) eda litlar eyjar. Tad er ekki haegt ad lysa tessu i ordum og ekki haegt ad setja inn myndir, gratlegt, verdur ad bida betri tima. Baturinn sem vid sigldum med var i stil vid floann, virkilega fallegur med storum raudum seglum. Siglinginn hofst um hadegi og med i for voru tveir Frakkar og nokkrir Spanverjar. A leidinni fengum vid ad bragda a sjavarrettum ur floanum. Vorum halfklaufaleg vid ad brjota krabbaskelina hehe ekki jafn professional og fransmennirnir og nautabanarnir a svaedinu. Bara fyndid ..... svona "pretty woman" stemning a okkar bordi !!

Tad var hreint otrulegt ad sigla tarna um, margir batar her og tar um floann med raudu seglin sin. Tad eru svo margir turistar tarna allt arid um kring og batarnir eru eingongu fyrir turistasiglingar. Liklega er tetta mest sotti turistastadurinn i Vietnam. En batarnir eru svo fallegir og falla vel ad natturunni svo tad gerir litid til ad tad se krokkt af teim. Tad hefur sinn sjarma. Sigldum sem leid la ad skoda fallegan helli sem kallast surprising cave, uppgotvadur fyrir nokkrum arum sidan og er dropasteinshellir. Enn eru ad uppgotvast fallegir hellar her og tar a svaedinu en a floanum eru samtals um 3000 litlar eyjar. Tad er einungis buid a einni eyjunni, vid forum reyndar ekki tangad. Hellirinn sem vid skodudum var mjog fallegur og nafnid a honum atti vel vid. Opid a honum var pinulitid en hellirinn sjalfur risastor og ekki spillti utsynid fra hellinum og yfir floann fyrir. Vid sogdum bara oh my god eins og tegar vid saum allar simalinurnar i Hanoi. (Taer aettu by the way kannski ad vera a skra UNESCO lika !!!) Tad turfti bokstaflega ad draga okkur af tessum fallega stad og ut i batinn aftur. Afram heldum vid siglingunni i att ad litilli strond. Tar stoppudum vid og klifrudum upp a litid fjall og horfdum a solina setjast. Endudum svo a thvi ad fa okkur sundsprett i ljosaskiptunum med utsyni yfir eyjarnar. Vaegast sagt aevintyralegt.

Svafum a batnum og nutum tess ad sigla milli eyjanna daginn eftir. Margir voru med kajak en vid hofdum ekki leigt neina, vid vorum i stadinn med arabat sem var lika gaman og vid konnudum annan helli a svaedinu. Vid stukkum ut i sjoinn af batnum og hofdum tad tvilikt gaman. Reyndum ad fa gamlingjana a batnum til ad stokkva ut i med okkur. Gekk frekar illa. Tad var samt allt i lagi, bara meira plass i sjonum fyrir okkur hehe.


Tetta hljomar lygilega......tetta var lygilegt. Sagt er ad madur hafi ekki komid til Vietnam nema madur hafi siglt a Halong Floa ..... jamm vid erum sammala thvi !!!
Sigg´s
4 athugasemdir

Hanoi

27. nóvember 2006 klukkan 19:46
Saelt veri folkid !! Erum buin ad vera ansi dugleg ad theysast her um sveitir nordur Vietnam og tad er buid ad vera meirihattar gaman. Margt ad segja fra og vid verdum ad vera dugleg ad blogga naestu daga.

Vid skildum vid ykkur tegar vid vorum nykomin til hofudborgarinnar. Hanoi er algjort aedi. Hun er ad morgu leyti svipud og Saigon en samt ekki. I Hanoi bua helmingi faerri og tad eru hlutfallslega fleiri motorhjol. I midri borginni er fallegt vatn en Hanoi er lika tekkt fyrir gamla baeinn tar sem eru gamlar byggingar fra nylendutimanum. Mjog sjarmerandi, vid gistum tar og ef tad er ekki Vietnomsk stemning i kringum okkur nuna tha vitum vid ekki hvad.

Hanoi er svo skemmtileg, vid faum liklega aldrei nog af henni. Tad fyrsta sem vid  tokum eftir voru simalinurnar, oh my god, hvilik flaekja ut um ALLT. Hvad gerst eiginlega ef siminn bilar ?? Hmmm best ad finna tennan numer 3520, ekki malid !!! Gamli baerinn er skitugur og mikil mengun en hann er samt eitthvad svo fallegur, hann er alls ekki tad sem gaeti kallast fjolskylduvaenn samt er allt morandi i litlum fjolskyldum ad sinna litlu budunum sinum og elda nudlurnar sinar mitt i umferdarongtveitinu, her virdist vera gedveikt mikid stress en tad er tad samt ekki, allir liggja a flautunni ekki til ad pirrast heldur til ad lata vita af ser, algjor umferdarteppa en samt einhvern vegin ekki, sumir kalla tetta laeti, gaetum ekki verid meira osammala,  ..... Hanoi er bara aedi !!

Vid erum utskrifadir snillingar ad fara yfir gotur og thefa uppi goda nudlustadi, Siggi er ordinn snillingur med prjona, Sigga er ad verda snillingur hehe. Okkur finnst skemmtilegast ad taka cyclo (kerra sem madur situr i einn til tveir og svo eru gaur fyrir aftan sem hjolar med mann ). Vid veljum alltaf elsta hjolagaurinn, thvi hrukkottari thvi betri, teir leyna nefnilega a ser !! Miklu hradskreidari en ungu letibykkjurnar. Svo situr madur i tessum kerrum med fullan magan af nudlum og runtar um gamla baeinn, virdir fyrir ser throng straetin, allt tetta upptekna folk.  Aahhhh, Hanoi jafnast a vid afsloppun a strond, madur tarf bara af gefa henni sjens !!!

Tetta er sem sagt typiskur dagur i Hanoi. Vorum reyndar buin ad hlakka til ad heimsaekja vin okkar Ho Chi Minh sem hefur fylgt okkur eftir i mali og myndum sidan vid komum til Saigon. Hann hvilir her i glerkistu i borginni nema hvad hann er i sumarfrii i 3 man i Russlandi sem stendur. Frekar svekkjandi en tad er vist haegt ad skoda husid hans thott hann se ekki heima. Erum ad spa i ad gera tad.

Her i sveitunum i kring eru sidan fjolmargir fallegir stadir ad skoda og vid byrjudum a Halong Bay....

Hattabaerinn Hue

22. nóvember 2006 klukkan 19:14

Hae Ho og takk till allra fyrir ad vera svona dugleg ad kvitta i gestabokina.

Vid eyddum einum og halfum degi i tessari gomlu hofudborg Vietnam en eftir stridid 1945 var hofudborgin faerd til Hanoi. Hue er thvi helst tekkt fyrir hallargardinn sem keisaraveldid byggdi og hafdi adsetur. Tarna voru upphaflega tugir fallegra bygginga en megnid af teim eydilogdust i stridinu vid Frakka og svo sidar i Vietnamstridinu. I dag eru einungis fimm byggingar heillegar. Einnig er Hue tekkt fyrir fallega grafreiti tessara keisaraaettar og tetta skodudum vid medan vi vorum i Hue. Ekki ma heldur gleyma thvi ad Hue er mjog tekkt fyrir hattagerd, tid vitid tessa sem eru eins og keila i laginu og eru her a hverju horni eda hverjum haus.

Vorum a fallegu hoteli adeins utan vid baeinn svo hjolhestarnir voru notadir ospart. Vid villtumst reyndar fyrsta daginn. Sigga attadi sig a thvi eftir ad hafa hjolad haestu brekkuna i Vietnam, kannadist ekki alveg vid ad hafa hjolad tarna nidur fyrr um daginn. Siggi hins vegar vildi ekki meina ad vid vaerum vilt, kalladi tetta aefingu dagsins, lumskur ad pina sina !!

Satt ad segja vorum vid ekki serlega hrifin af Hue, tad var gaman ad skoda hallargardinn og skodudum eina grof sem var umlukin storum og fallegum gardi. Hins vegar fannst okkur Hue vanta tann Vietnamiska sjarma sem hefur einkennt alla vidkomustadi okkar hingad til. Fyndid ad segja tad en vid soknudum motorhjolana, bilflautana, folksfjoldans a gotunum ad elda ser mat eda selja allt milli himins og jardar. Med odrum ordum tad vantadi stemninguna. Tad er bara svo gaman ad hjola i kaosinni en i Hue er engin kaos !! Svo var erfitt ad finna goda veitingastadi, soknudum strax litla stadarins i Hoi An og litlu kaffihusana. Tad ma vera ad vid hofum ekki verid a rettu stodunum eda vid ordnar krofuhardar hrisgrjonaaetur. En hvad um tad. Hue var bara agaet, stoppudum stutt, hvildum okkur i solinni og fengum okkur sundsprett.

Erum komin til Hanoi i stemninguna sem vid soknudum svo mikid i Hue. Erum buin ad eyda 2 timum i ad setja inn myndir og erum buin ad gefast upp, erum buin ad reyna reglulega en ekkert gengur. Bummer.

Knus Sigga og Siggi

Sigg´s
3 athugasemdir